20. september 2009

Hæ allir.

Jæja nú er komið tími til að setja inn nokkrar myndir og skrifa smá.
Við héldum upp á 1 árs afmælið hans Björns Jóels þann 5.september síðastliðinn og það var sko fullt af gestum sem komu. Við skiptum afmælinu í tvennt svo allir kæmust nú fyrir í þessu litla rými hérna. :O)
Hann fékk fullt af gjöfum og við vorum bara mjög ánægð með þetta allt saman ...voða gaman.
Ég ætla að setja nokkrar afmælismyndir inn og líka nokkar fleiri svona úr því að ég er að þessu. :O)

En ég ætlaði ekki að hafa þetta langt í þetta skiptið.

Bæ í bili.

Kveðja Björn Jóel og co

17. ágúst 2009

Sæl öll.

Jæja þá er loksins komið að því að ég setji inn myndir, orðið ekkert smá langt síðan.
Það er margt að frétta síðan síðast, en það sem er kannski svona mest fréttnæmt er að litli kúturinn okkar byrjaður að ferðast um allt fótgangandi, alveg ótrúlega duglegur lítill kall. :O)
Þetta átti sér stað fyrir austan fljótlega eftir að við komum eða ca síðustu helgina í júlí og hefur hann eiginlega verið fótgangandi síðan.
Við höfðum það nú alveg ágætt fyrir austan en það eina sem hefði mátt vera betra var bara veðrið en það var þoka og rigningarsuddi sem réði ríkjum.
Svo er mamman að fara að byrja i skólanum núna 24.ágúst og þá fer litli kúturinn til dagmömmu en hann er reyndar byrjaður þar í aðlögun og gengur bara framar vonum sem betur fer. Hann er reyndar veikur núna, með einhverja hitavellu greyið litla.

En við höfum svo sem ekkert að segja meira i bili, vonandi setjum við nú inn myndir aftur sem fyrst. Mig grunar nú reyndar að við munum setja myndir af afmælinu hans Björns Jóels sem verður haldið hér þann 5.september næstkomandi.
En nú segjum við bara bless bless. :O)

Kveðja Mamma og Björn Jóel.

 

22. júlí 2009

Hæ öll.

Bara að láta vita að ég var að setja inn nokkrar myndir sem voru teknar í útilegu sem við litla fjölskyldan fórum í um daginn og hittum þar vini okkar og börnin þeirra. :O)
Njótið vel, set fleiri myndir inn næst, þetta er nú bara svona smá sýnishorn.:O)

Kveðja Björn Jóel og co.

30. júní 2009

Sæl öll.

Við erum ekkert smá dugleg núna búin að setja enn eina ferðina nýjar myndir inn. :O)
Í þetta skipti eru það myndir af ættarmóti (móðurætt Þorgeirs)sem við fórum á um síðustu helgi og var bara gaman. :O)
Segjum nú ekkert meira í bili en endilega muna að kvitta. :O)

Kveðja Björn Jóel og foreldrarnir.

26. júní 2009

Hæ aftur. :O)

Mátti til með að bæta inn nokkrum myndum af ferð sem við fórum í grasagarðinn í Laugardal um daginn. :O)

Kveðja mamma.

26. júní 2009

Sæl öll.

Af okkur er svo sem ekki margt að frétta, svona eiginlega allt við það sama bara.
Reyndar skelltum við okkur norður á land um síðustu helgi til að heimsækja ömmu Helgu sem var þar við afleysingar á vitavörslu og bústörfum. Það var bara mjög gaman að kíkja aðeins úr bænum og skoða nokkur dýr og slappa svoldið af. :O)

Mamma og Björn Jóel eru svo að fara í 10 mánaða skoðun í byrjun júlí og þá verður gaman að sjá hvað kemur út úr því, mömmunni finnst strákurinn allavega vera farin að síga alveg heilmikið í, orðið býsna erfitt að halda á honum.
En við segjum nú ekkert meira í bili, við reynum að vera duglegri að setja inn fleiri myndir en það er líka ansi misjafnt hversu dugleg foreldrarnir eru að taka myndir, stundum koma myndirnar í hrönnum en aðra stundina finnum við ekkert myndefni svona eins og gengur og gerist bara held ég. :O)
Muna svo að kvitta. ;O)

Kveðja frá Birni Jóel og mömmunni.

03. júní 2009

Hæ allir saman.

Jæja þá er það helst að frétta að Björn Jóel er búin að vera veikur síðan á föstudaginn síðastliðinn, sem sagt ekki skemmtileg Hvítasunnuhelgi á ferðinni, hefði allavega mátt vera betri. Litli kúturinn er búin að vera með rosa mikið kvef, hálsbólgu með miklu slefi og það sem verst er að þá fékk hann slæma augnsýkingu en samt lítinn sem engan hita. Hann var líka alveg merkilega góður greyið og var ekkert að halda mikilli vöku fyrir foreldrunum fyrir utan kannski fyrstu nóttina. :O/ En þessi veikindi eru sem betur fer að verða búin og drengurinn þarf örugglega bara að vera einn dag í viðbót inni við. :O)
Reyndar er mamman að verða veik líka en það byrjaði í gær með hnerrum og hósta og vonandi þarf ég bara að vera inni á morgunn og svo búið, ég krossa allavega puttana.
En ég ætlaði að setja inn nokkrar myndir með og án veikinda svona til gamans. :O)
En svona í lokin vil ég minna fólk á að kvitta. ;O)

Kveðja
Mamma og Björn Jóel.

20. maí 2009

Hæ allir.

Jæja nú setti ég myndirnar sem ég lofaði að setja inn af drengnum. Þetta eru nú ekki merkilegar myndir, frekar svona einsleitar en sýna kannski hvað lillinn okkar er búin að stækka mikið og er orðin nokkuð mannalegur bara. :O)
Við fórum líka í 8 mánaða skoðun í seinustu viku og kom hún bara vel út. Kúturinn var 9,4 kg og rúmir 71 cm sem þýðir að hann fylgir bara sinni kúrfu sem er fínt. :O)
Björn Jóel er farin að skríða eins og herforingi um allt og með þó nokkrum rassaköstum, bara sætt sko. :O) Svo er hann orðin ennþá duglegri að standa upp með fram hlutum og núna þarf að passa hann alveg rosalega vel, hann er svo fljótur til að ná í hluti sem hann á ekki að ná í.:O/
Hann má allavega eiga það að hann er einstaklega duglegur lítill drengur, hann er sem sagt 8 og hálfs mánaða um það bil  og fer örugglega alveg að labba, sem sagt foreldrarnir verða í loftköstum á eftir honum.
Við hjónaleysin erum líka að reyna að kenna honum að klappa sem er alveg að fara að koma hjá honum, hann syngur (gargar hehe) með einu sérstöku lagi sem við foreldrarnir syngjum gjarnan fyrir hann (okkur finnst það svo fyndið ;O) ) og svo kann hann að gefa "high five".
Það hafa líka bæst tvær tennur í hópinn en það eru vígtennurnar í eftri góm þannig að hann er svoldið eins og lítil vampíra, bara krúttlegt. :O)
Matarvenjurnar hafa líka breyst mikið því nú fær hann fisk og kjöt og ýmislegan mannamat það er að segja ekki svona afgerandi maukmat eins og hann fékk áður.
En við ætlum að segja þetta gott í bili enda mamman búin að skrifa alveg helling. :O)
Endilega verið dugleg að kvitta...

Kærar kveðjur
Björn Jóel og mamma.

19. maí 2009

Hæ allir.

Ætlaði bara að láta vita að Þorgeir setti nokkar úti myndir af Birni Jóel svona upp á grínið.
Drengurinn var bara úti í göngugrindinni sinni að skoða blóm sem óx hérna i túnfætinum. ;O)
Mamman ætlaði að vera búin að setja inn nokkrar myndir fyrir nokkrum dögum nema bara tæknin var e-ð að stríða þannig að það klúðraðist aðeins. Meiningin er að reyna að gera það aftur sem fyrst og bið ég alla að sýna þolinmæði.
En ekki meira að segja núna, munið að kvitta. ;O)

Kveðja
Mamma og Björn Jóel.

13. apríl 2009

Sæl öll sömul.

Jæja þá er best að setja hérna eina færslu inn upp á grínið.
Við fórum austur á Borgafjörð eystri til foreldra minna um páskana og hefur það bara verið mjög notó en við erum reyndar á heimleið á morgunn erum sko búin að vera hérna síðan 5.apríl. :O) Við flugum í þetta skiptið og var þetta fyrsta flugferð drengsins og hann bara svaf hana alla af sér í fanginu á mömmu sinni. :O)

Veðrið hér á Borgafirði er reyndar ekki buið að vera upp á marga fiska, frekar rokgjarnt og svo snjókoma, sú mesta sem ég man eftir hérna í firðinum verð ég að segja.:O/
Ég tók nú nokkrar myndir til að sýna ykkur framan í Björn Jóel, hvað hann hefur stækkað og svonna. :O)
Hann er alveg að fara að labba höldum við foreldrarnir af því að hann er í því að reyna að standa upp á miðju gólfinu, það vantar bara herslu muninn sko að hann geti reist sig upp og labbað af stað. Hann er reyndar rosa duglegur að hífa sig upp einhverja hluti og labba svo með fram þeim. púff púff...:O/
Drengurinn er auðvitað allt of ungur í þetta brölt allt en það er allavega hægt að segja að hann sé duglegur og styrkur strákur. Hann er líka alltaf að detta á höfuðið og er með rauða bletti og litla kúlur á litla andlitinu og höfðinu.:O( Þegar við komum heim þá verður hann líka settur í ferðarúm sem við eigum til að leika sér í en það er  bókstaflega bólstrað að innan þannig að hann ætti ekki að vera alltaf að detta og meiða sig, huggun fyrir mömmuna. :O)

Litli kúturinn er reyndar lasin, varð veikur í gærkveldi, fékk 39 stiga hita sem er ennþá og er frekar ómögulegur og vill helst bara vera i fanginu á foreldrunum. Það sem er verst að við erum að fara suður á bóginn á morgunn en það verður auðvitað svoldið leiðinlegt að þurfa að fara með sjúklinginn í flugvélina. :O( Vona að hann verði eins sáttur eins og hann var í fyrsta skiptið og hann geti sofið.

En ég segi nú ekki meira í bili, vona að páskarnir hafi verið góðir við ykkur og gleðilega páska bara. :O)
....og ekki gleyma að kvitta ....;O)

En þangað til seinna.....

Björn Jóel og mamma.

22. mars 2009

Hæ allir.

Ætlaði bara svona að láta fólk vita að ég var að setja inn myndir af kútnum. Það er annars lítið að frétta af okkur bara same old.
Við erum reyndar að fara austur 5.apríl til ömmu og afa á Borgarfjörð í páskafrí og ætlum að vera þar til 14.apríl. Í þetta skipti ætlum við að fljúga til að spara tíma og verður það fyrsta flugið hans Björns Jóels og vonandi gengur það bara vel.

En við segjum nú ekkert meira í bili en endilega verið dugleg að kvitta fyrir ykkur og vonandi verð ég duglegri að blogga næst eitthvað skemmtilegt.

Kveðja Björn Jóel og mamma.

04. mars 2009

Jæja þá er komin tími á smá blogg, enda við búin að vera löt núna undanfarið.
Það er þá helst að frétta að það er komin önnur tannsla og er hún í neðri góm við hlið þeirrar fyrstu. :O) Mamman tók eftir henni ca viku eftir að sú fyrsta kom og varla líður á löngu þar til tennurnar fara að koma  í röðum. Reyndar þurfti að mamman að kaupa svona róandi gel í munninn svo að litli kallinn væri ekki svona órólegur vegna tanntökunnar og það hefur bara alveg svínvirkað. :O)
Drengurinn stækkar og stækkar og verður líka ákveðnari með tímanum, hann er sko alveg farin að láta mömmu sína hlaupa til og frá fyrir sig og láta hana redda hinu og þessu:.;O)
Björn Jóel er að verða 6 mánaða/hálfs árs á morgunn, sem er alveg ótrúlegt af því að mér finnst þetta vera allt of fljótt að líða allt saman. Mér finnst engan veginn vera hálft ár síðan ég var upp á fæðingardeild, ótrúlegt sko!!
Við erum að fara í sex mánaða skoðun á föstudaginn næstkomandi og þá skal ég reyna að setja inn mælingar eins fljótt og ég get/nenni.;O)
En ég var að setja inn nokkrar myndir af stráksa og vona að þið hafið gaman af.:O)

Kveðja

Mamma og Björn Jóel.

16. febrúar 2009

Hæ öllsömul.

Jæja nú er fyrsta tannslan hans Björns Jóels komin, mamma fann hana í morgunn. :O) Hún er reyndar bara rétt að koma upp en samt er hún þarna. :O)
Ég var að setja inn myndir frá því að Dilja vinkona  kom í heimsókn með strákinn sinn en hann er akkúrat 2 mánuðum yngri en Björn Jóel.
Einnig voru myndir af heimsókn sem við fórum í um helgina til langaafa og ömmu hans Björns Jóels, en þau eru föður afi og amma Þorgeirs.

Kannski svona annað sem er í fréttum er að Björn Jóel er byrjaður að fá grænmeti sem ég sýð handa honum en við erum bara að fikra okkur smám saman áfram en honum finnst það allavega ekkert smá gott. Hann er ekki svona hrifinn lengur af grautnum sem hann fékk til að byrja með, en það er svo sem í lagi úr því að hann vill grænmetið í staðinn. :O)

En þetta er allt í bili allavega þannig að þangað til næst þá ætlum við að kveðja og minna á gestabókina enn eina ferðina. ;O)

Kveðja Björn Jóel og foreldrar

09. febrúar 2009

Sæl öll.

Jæja núna er komin tími til að skrifa nokkrar línur. Björn Jóel var í 5 mánaða skoðun  6.febrúar síðastliðinn og kom bara mjög vel út úr henni. Hann var tæp 8200 grömm og 69 cm og höfuðmálið var 44 cm og heldur bara sinni vaxtarkúrfu. :O)
Björn Jóel er alveg byrjaður að fá pela, reyndar ekki fyrir svo alls löngu en hann er mjög sáttur við hann reyndar, þannig að það voru enginn leiðindi og svo fær hann alltaf graut á kvöldin til að vera svoldið saddari fyrir nóttina eða áður en hann fer að lúlla. :O)

Mamma og Björn Jóel fóru á föstudaginn í mömmuhitting í Frumherja þar sem mamma var að vinna,það voru nefnilega svo mörg börn sem fæddust árið 2008 hjá starfsfólkinu.
Það var bara gaman að hitta vinnufélagana aftur og sjá börnin þeirra sem voru auðvitað hverju öðru myndarlegra. :O) Ég tók nokkrar myndir sem ég ætla að setja hérna inn en ég því miður náði ekki af öllum, var aðeins of hugsunarlaus til að taka myndir af öllum auðvitað, alltaf söm við mig en vona að enginn móðgist. :O/

Björn Jóel fór á sitt fyrsta þorrablót á laugardaginn síðastliðinn en það var svona fjölskylduþorrablót hjá ættingjum móðurafa Þorgeirs. Þessi ætt er kölluð Syðralónsættin og er hún bara mjög stór og því er þetta ekkert  lítið þorrablót en er reyndar haldið árlega. Við vorum í ca 2 klst með snáðann þarna og hann heillaði alla uppúr skónum.:OD Leyfði öllum að tala við sig og halda á sér og svo brosti hann framan í alla. :O) Var reyndar orðin svoldið þreyttur undir það síðasta en samt ekkert fúll. :O)

En þetta er allavega nóg í bili, ekki gleyma að kvitta í gestabókina. ;O)

Kveðja Björn Jóel og foreldrarnir.

31. janúar 2009

Hæ allir.

Það er allt gott að frétta af okkur litlu fjölskyldunni og Björn Jóel stækkar og stækkar. Hann er byrjaður núna að hreyfa sig mjög mikið, velta sér og rúlla. :O)
Þá er einnig kannski nýjast að mamman er byrjuð að gefa stráknum graut sem hann er alveg æstur í og svo er hann líka byrjaður að fá oftar pela. Ég setti nokkrar myndir þar sem litli gaurinn er að borða og hann borðar ekki bara með munninum heldur öllu andlitinu. ;O) Svo er hann búin að eignast uppáhalds bangsa sem hann er endalaust hrifin af og á örugglega eftir að verða góður "félagi" í framtíðinni. :O)
En ekkert meira að frétta, setti inn nokkrar myndir allavega til að allir geti fylgst með.
Í byrjun febrúar förum við svo í 5 mánaða skoðun og þá verður gaman að sjá mælingarnar. :O)
Muna að kvitta svo. ;O)

Kveðja mamma og Björn Jóel.

14. janúar 2009

Hæ öll.

Hér er nýjar myndir af drengnum okkar sem stækkar eins og illgresi. ;O) Þessar myndir eru teknar í frá byrjun janúar til þessa dags. Njótið vel og skrifið í gestó..það er bara orðið dautt í  gestabókarskrifum hef ég tekið eftir hehe...

Bæó
Mamma og Björn Jóel.

07. janúar 2009

Hæ allir saman.

Jæja nú er best að segja nokkur orð.
Litla fjölskyldan var nú bara fyrir stuttu að koma heim að austan úr jólafríi. Þetta var bara fínasta ferð en samt alveg rosa gott að komast heim eins og alltaf er. :O)
Allt gengur svo sem bara ágætlega hérna hjá okkur en Björn Jóel er búin að stækka svaka mikið og búið að fara rosalega fram líka. Hann var líka 4 mánaða síðastliðinn sunnudag eða núna 5.janúar réttara sagt. Hann er mikið að reyna að standa í fæturnar en foreldrunum finnst það ekki sniðugt svona í ljósi þess að hann fari ekki of snemma að labba, nógu snemma verður það víst samt.;O) Einnig hefur mamman heyrt að það geti leitt til þess að drengurinn verði síðar hjólbeinóttur og það er  e-ð sem hún vill sko ekki.
En allavega við vorum að setja inn ný myndaalbúm í fleirtölu, við bættum við skírnarmyndirnar og einnig ákváðum við að setja bestu myndirnar sem urðu til við jólakortamyndatökuna.
Þannig að njótið vel og ekki gleyma að kvitta...í guðs bænum. ;O)

Kærar kveðjur

Björn Jóel og foreldrar.

25. desember 2008

Gleðileg Jól allir saman. :O)

Nú er fjölskyldan litla bara á Borgafirði að danglast e-ð,  foreldrarnir erum reyndar að fara að spila tölvuleik á móti hvort öðru, svo er mamman að lesa og borða nammi. Pabbinn er buin að vera ofsalega duglegur og er buin að hitta stráka sem eru í svipaðri aðstöðu og hann á svæðinu  (hafa ekkert að gera sem sagt ;O) ) og spila fótbolta saman í nýju sparkhöllinni sem hér er. En nóg af því meira að mér sjálfum.;O)

Ég er bara buin að sofa, drekka mjólkina mína og hafa það gott. Ég fékk fullt af gjöfum sem ég tók reyndar ekki upp sjálfur heldur lét mömmu og pabba gera það fyrir mig, kannski eins gott því ég fékk ekki marga harða pakka. Ég er samt handviss um að á næsta ári fái ég fullt af hörðum pökkum og þá get ég rifið þá upp sjálfur og það verður nú gaman. ;O) En samt var mamma fjarska glöð að ég fékk mikið af fötum og þau voru mjög fín og falleg sagði hún. :O)

Jólamyndirnar eru komnar inn eða allavega hluti af þeim, kannski setur pabbi fleiri inn en mamma setti allavega smá sýnishorn. Njótið vel og takk fyrir mig. :O*

Kærar Jólakveðjur

Björn Jóel og foreldrarnir.

22. desember 2008

Sæl allir.

Jæja nú eru fyrstu jólin hans Björns Jóels að ganga í garð og við hlökkum bara svoldið til. Það var bara ansi notalegt að koma hérna í sveitina og njóta jólanna í kyrrð og ró. Það var samt alveg svakalega leiðinlegt og þreytandi að keyra hingað enda var ég líka e-ð lasin með kvef og hálsbólgu, ömus.
Meiningin er að vera hér í 2 vikur ca, eða e-ð fram yfir áramótin, við erum reyndar vön að vera fyrir sunnan á áramótunum en ákváðum að vera bara hér af því að við erum með lítinn trítil sem þýðir að við gerum hvort eð er ekkert nema að vera með litla skottið. :O) Ég vil bara njóta hans í botn meðan hann er svona lítill og hann þarf að hafa mömmu sína á stand-by. ;O)

Kannski munum við líka krúsa svoldið um firðina hérna í nágrenninu og heimsækja vini og ættingja, en það fer reyndar allt eftir veðrinu hérna fyrir austan sem vill oft verða ansi leiðinlegt þegar við komum, svona einhverra hluta vegna. :O/
Ég segi nú bara gleðileg jól enn og aftur og ég ætlaði svona upp á grínið að setja inn eina mynd af okkur foreldrunum og eins og sést á þeirri mynd þá máttum við nú muna okkar fífil fegri. ;O) Samt gaman að eiga eina mynd af okkur saman þar sem annað hvort okkar er ekki e-ð asnalegt, virðist vera erfitt að ná góðri mynd af okkur saman. ;O) hehe
En hér er mynd af mömmunni og pabbanum, Guðrún vinkona tók þessa mynd fyrir lööööönnnnggguuu síðan að manni finnst, örugglega 2 eða 3 ár síðan held ég. ;O)

Kveðja Mamman, pabbinn og stubburinn

18. desember 2008

Sæl allir.

Ég ætlaði bara að tilkynna að ég var að setja myndir hérna inn, já,ég þar sem ég var að læra það.;O) Ekki samt víst að ég geti gert þetta aftur nema að fá tilsögn en hana fékk ég einmitt núna frá Togga, þar sem hann er í vinnunni.:O) hehe Þetta er sko mega flókið fyrir svona mikla bjálfa eins og mig. ;O)
En nóg um það nú styttist í jólin og ég segi bara Gleðileg jól við alla og kannski segjum við nokkur orð í jólafríinu ef við nennum því þá .;O)

Kærar kveðjur

Mamma og Björn Jóel.

17. desember 2008

Sæl öll.

Ég ætla að blogga smá svona um framvindu mála, ekki það að það sé e-ð svakalegt búið að gerast í okkar hversdagslega lífi.;O)
Björn Jóel er búin að stækka alveg fullt og er farin að þroskast mikið líka. Það er orðið svaka gaman af honum hann hjalar alveg út í eitt og er rosalega mikið að reyna að segja e-ð. Hann er líka alger slefi og æli þannig að ég þarf alltaf að vera að skipta á fötum svo hann fari ekki á flot litla skinnið, sem sagt nóg að þvo, en það er svo sem ekkert sem mömmur vita ekki. ;O) Svo er ég náttlega líka  öll í slefi og ælu eftir hann og ég mæli oft á dag eins og segir i kvæðinu (þvæ sem sagt mikið).hehe:OD
Það er líka bara tímaspursmál hvenær hann fer að snúa sér, hann er sko nú þegar byrjaður að gera tilraunir, mér finnst það reyndar bara svoldið svona ógnvekjandi en það hlítur að venjast.:O/

En nóg um það  ég ætlaði að setja inn svoldið krúttlegt video af litla gaurnum sem pabbi hans tók fyrir stuttu síðan. Hann Toggi er greinilega buin að ákveða hvað stubburinn á að verða þegar hann verður stór eins og sést á video-inu en þá er spurningin vill hann það? hehe :OD

Bara svona svo allir viti það svona í lokinn þá erum við litla fjölskyldan að fara austur á laugardaginn í jólafrí  og komum ekki aftur heim fyrr en eftir áramót. Sem sagt alveg tvær vikur. vei vei vei!!

En það er ekkert meira að frétta í bili, segi e-ð gáfulegt seinna. :O) Ekki gleyma að kvitta, tekur enga stund.;O)

Kveðja mamma og Björn Jóel.

08. desember 2008

Sæl öll.

Ætlaði að láta vita að ég var að setja inn nýjar myndir af Birni Jóel sem voru teknar á dögunum. Einnig er vert að minnast á að drengurinn varð 3 mánaða þann 5.desember síðastliðinn og er bara orðin stór og myndarlegur strákur. Annað er svo sem ekkert að frétta, við erum bara hérna heima að dunda okkur Björn Jóel og mamman, við ýmislegt. :O)
Höfum ekki meira að segja í bili endilega kvittiði nú fyrir ykkur ef þið eruð að kíkja á síðuna það er bara svo miklu skemmtilegra fyrir okkur. ;O)

Kveðja mamma og Björn Jóel.

02. desember 2008

Sæl öll.

Í dag fór mamma og pabbi með Björn Jóel í 3 mánaða skoðun. Drengurinn mældist um 65 cm og 7 kg og fannst hjúkkunni hann bara lofa góðu miðað við hans aldur. Ég náttlega notaði tækifærið og tók með mér myndavélina og smellti nokkrum myndum af drengunum meðan á þessu stóð og hef ég sett þær hér inn á síðuna. 
Björn Jóel var rosa duglegur þegar átti að sprauta hann, það bara heyrðist ekki í litla kút, enda ýmsu vanur síðan á vökudeildinni.

Einnig er gaman að segja frá því að við fórum í smá mömmuheimsókn í dag og hittum 3 mömmur og annað eins magn af krökkum og auðvitað var það bara hressandi og braut heilmikið upp daginn. :O) Mamman bara gleymdi alveg að taka upp myndavélina (er greinilega ekki að standa sig í stykkinu) og því er ekkert til að sanna þá heimsókn, þið verðið bara að trúa mér. ;O)

Segi ekki meira í bili.

Kveðja foreldrarnir og Björn Jóel. 

01. desember 2008

Hæ allir.

Ég ákvað að setja inn nokkrar myndir sem ég tók í gær af stráksa. :O) Eins og sést á myndunum þá er sá stutti bara farin að reisa sig upp sjálfur og heldur sér alveg heillengi uppi. :O)
En það er svo sem ekkert að frétta frá okkur og allt með kyrrum kjörum hérna.
Við erum reyndar að fara í 3 mánaða skoðun á morgunn ég og Björn Jóel þó að hann sé ekki alveg orðin 3 mánaða verður það sko eftir bara 4 daga og ég get ekki beðið eftir að sjá hvað hann hefur þyngst og lengst. :O) Ég mun birta það hérna á síðunni og jafnvel myndir ef ég gleymi ekki myndavélinni (tíbískt ég sko ;O) ). 
Svo er bara næst á döfunni að fara austur um jólin en það verður örugglega í kring um 15.des kannski aðeins seinna en við stefnum allavega á að vera í um það bil 2 vikur. Hlakka til þess og líka jólanna!!! :OD
En þetta er allavega nóg í bili.

Kveðja mamma, pabbi og Björn Jóel.

30. nóvember 2008

Sæll öll.. Pabbinn hérna. Ég ætlaði nú bara að henda inn einu video af littla kút, en kannski að maður skrifi aðeins um stöðu mála.
Það er nú helst að frétta að drengurinn virðist vera að átta sig á því að hann er með hendur og það sé hægt að nota þær. Hreyfingarnar eru óttlega klaufalegar svona í fyrstu en þetta hlítur allt að koma. Í ljósi þess hversu "virk" við foreldrarnir vorum á fyrstu mánuðunum(vorum bæði farinn að hlaupa um 9 mánaða) þá er búið að setja á strangt bann við labbæfingum. Það er kannski full snemmt að vera að hafa áhyggjur af þessu núna og kannski skiptir þetta bara engu máli, en við ætlum a.m.k. ekki að hvetja hann til þess hlaupa niður húsgögn og annað lauslegt eitthvað fyrr en þurfa þykir. ;O)

En hérna kemur videoið

22. nóvember 2008

Hæbbs.

Bara að tilkynna að ég var að setja inn nokkrar myndir af litla manninum okkar sem er eiginlega bara ekkert svo lítill. :O) Þetta eru tvær möppur sem við settum inn, sú fyrri sem mamman tók og seinni frá pabbanum eins og nafnið á möppunni gefur til kynna.
Hann er reyndar buin að vera e-ð slappur greyið í dag með smá hitavellu en er samt buin að vera ofsa góður þrátt fyrir það. Hann lítur nú ekkert veiklulega út á myndunum sem Toggi tók í dag, kannski bara smá rauður í kinnum.
En allavega hef ekkert að segja meira núna nema kannski hvetja fólk til að skrifa í gestabókina til að gleðja mitt litla hjarta í kreppunni. ;O)

Kveðja mammsan og litli Björn.

18. nóvember 2008

Sæl öll.

Ég var að láta Togga setja inn nokkrar myndir af stráksa sem ég er búin að vera að taka svona undanfarna daga.
Hann er alveg sjúkur í að naga allt, hendurnar á sér og helst mér líka, taubleyjur og eiginlega bara allt sem hann nær í. Hann er samt ekki komin með neinar tennur þó ég tali um að hann sé að naga en það líður ekki á löngu uns þær koma, þetta er svo fljótt að gerast allt saman. Ég keypti líka alveg dýrindis óróa handa Birni Jóel sem spilar 3 mismunandi lög eftir Mozart og einhverja álíka snilla og plús það að kvikindin sem eru föst í óróanum snúast í hringi. Þetta vakti nú enga smáræðis lukku hjá honum, hann hjalaði og hló og gat ekki hætt að horfa á þetta furðuverk.

En allavega ég segi svo sem ekkert meira í fréttum núna en set inn myndir fljótlega aftur, er sko að reyna að bæta mig svo fjölskyldan og aðrir sem hafa áhuga geti fylgst með. En ég er nú ekki að sjá neina aukningu í gestabókaskrifum en það var nú eins og við var að búast svo sem. :O(

Seinna

Mamma og Björn Jóel.

10. nóvember 2008

Hæ aftur.

Ég er bara mætt hérna á bloggið með meira til að segja samdægurs. ;O)
Ég gleymdi að segja í síðustu færslu að síðastliðinn föstudag fór mamman með drenginn sinn í 9 vikna skoðun og hann kom mjög vel út úr henni var 6500 grömm  tæplega og um það bil 62 cm. Hjúkkan hrósaði honum líka í hástert fyrir að vera athugull og gerðarlegur sagði hún, þannig að við fórum sátt frá heilsugæslunni. :O)

En ég ætlaði líka að minnast á að ég var að setja fleiri myndir inn á síðuna sem ég var að dunda mér við að taka í dag svona í einveru minni.
Ekkert fleira núna en ég kveð þangað til næst allavega og guð má vita hvenær það verður vegna gríðarlegs dugnaðar í dag. ;O)

Mér finnst nú reyndar svona svoldið þunnur þrettándinn orðin í gestabókarskrifum, enginn hefur áhuga á þessu lengur þegar ekki dregur meira til tíðinda. Endilega skrífiði í gestabókina til að gleðja hjartað á mömmunni sem er bara ein heima í fæðingarorlofi. ;O)

Kveðja Ídan

10. nóvember 2008

Sæl öll.

Jæja nú setti ég myndir af skírnardeginum sem voru náttlega allt of fáar.:O/ Það gafst einhvern veginn ekki tími fyrir mikla myndatöku, foreldrarnir í miklilvægu hlutverki auk þess að myndavélin var bara ekki við hendina.
Pælingin var eins og áður sagði að sníkja myndir af einhverjum sem var duglegur að taka myndir þennan dag og ég er með manneskju í huga, vona bara að hún láti myndirnar af hendi. ;O)

Veðrið þennan dag var heldur ekki til að hrópa húrra fyrir, brjálaður vindur, giska á að það hafi verið um það bil 20 metrar á sekúndu í mestu hviðunum. Samt það fyndna er að það var ekki vont verður eiginlega neinsstaðar á leiðinni til Borgarfjarðar bara þegar fólk nálgaðist þorpið skildist mér.

Kannski að ég útskýri titilinn á blogginu, því það fattar örugglega enginn djókið sem liggur að baki, halda kannski bara að ég kunni ekki að skrifa. ;O)Málið var að þegar fjölskylda Togga var á leiðinni austur í skírnina þá hringdi síminn hjá Sigtryggi, bróður Togga, hann er ungur maður.;O) Trúlega hefur það verið vinur hans sem var að hringja en það fylgdi reyndar ekki sögunni. Vinurinn hefur sennilega verið að spurja hvað Sigtryggur væri að gera og hann svaraði: "Ég er á leiðinni í skíringu". Þetta fannst okkur mjög skemmtileg málvilla og höfum síðan talað um skíringu en ekki skírn. :OD Bara fyndið sko.....Þessir krakkar nú til dags ;O)...múhahaha

En ég hef svo sem ekki meira að segja í núna, segi kannski eitthvað gáfulegt næst.

Kveðja Mamma, Pabbi og Björn Jóel.

05. nóvember 2008

Hæ allir saman.

Litla fjölskyldan er komin heim frá austurlandinu góða þar sem pabbinn varð að fara í skólann og vinnuna, hefði alveg viljað vera lengur en við bara bætum úr því á jólunum.
Nú er skírnin afstaðin og ekkert annað eftir en að setja inn myndir af því en það verður þó ekki alveg hægt strax þar Toggi þarf að gera það og við ætluðum að fá myndir hjá ættingjum okkar sem voru duglegir að taka myndir.:O) Langar að þakka öllum fyrir fallegu gjafirnar sem Björn Jóel fékk og sérstaklega langar okkur að þakka mömmu og pabba fyrir skírnarveisluna sem tókst alveg frábærlega.:O)

Ég ætlaði ekkert að hafa þetta langt bara svona rétt að skrífa nokkar línur og mig langaði líka til að óska Dilju og Sindra til hamingju því þeim fæddist strákur aðfararnótt  5.nóvembers. Honum lá ekkert smá á að koma í heiminn, því Dilja var sett 20.nóvember og hann var 12 merkur og 47 cm og heilsast móður og barni bara vel.:O) Nú bíð ég bara spennt eftir myndum af prinsinum litla og hlakka líka til að heyra í Dilju. Ég setti hérna inn til hliðar link á síðuna hans.:O)

En annars er þetta komið gott í bili.

Kveðja mamma og B.J. ;O)

30. október 2008

Sæl öll.

Langaði svona aðallega að láta vita af myndunum sem ég var að setja hér inn. Við vorum sko að skanna inn myndir af okkur þegar við vorum lítil bara svona til gamans og þá verðið þið að fara inn í eldri myndir eða smella á myndirnar sem eru þarna í albúmminu.
Nú er spurning hverjum Björn Jóel er líkur? Hann er allavega ekki jafn líkur pabba sínum og ég hélt, allavega ekki þegar Toggi var lítill. múhahahahaha....það segja nefnilega allir að ég eigi ekkert í honum, kannski aðeins meira en allir héldu.;O)

Við komum hérna austur á laugardaginn síðastliðinn og það var sko löng ferð alveg 12 tímar allavega. Það kom auðvitað til vegna drengsins sem þurfti að fá að borða og setja bleyjur á leiðinni.
Núna er bara verið að undirbúa skírnina á fullu sem verður á laugardaginn. Hlakka alveg fullt til að hitta alla og sýna Björn Jóel aðeins. :O)
Gaman að segja frá því að við komum sko færandi hendi hingað austur en við færðum mömmu Irobot sem er ryksuguvélmenni.Þetta gerðum við í tilefni af 55 ára afmælinu hennar sem var þann 22.október síðastliðinn. Hún var frá okkur og pabba og auðvitað var hún hæst ánægð með gripinn. Ryksugan þrælvirkar líka og það er einmitt fínt að prófa hana svona úr því að hundarnir eru hérna með okkur til þess að dreyfa hárum. ;o) Núna er ekkert mál fyrir mömmu að hafa tíkurnar í heimsókn úr því að það þarf ekki að þrífa svona mikið hárin af gólfum.

En allavega ég segi ekkert meira í bili en við setjum svo myndir af skírninni næst, vonandi verður það gert fyrr heldur en seinna. ;O)

Kveðja Ída, Toggi og Björn Jóel.:OD

23. október 2008

Sæl öll.

Nú er komin tími til að skrifa nokkrar línur, því það er svo langt síðan síðast. Það er svo sem ekkert að frétta frá okkur annað en gott, við dólum okkur svona heima ég og Björn Jóel í rólegheitunum. :O)
En það er svona hvað fréttnæmast er að litla fjölskyldan er á leið austur núna á laugardag. Vúhú..jibbí skibbí skó ...

Ég og móðir mín munum vera meira og minna alla næstu viku að undirbúa fyrir skírnina sem verður þar næsta laugardag eða 1.nóvember eins og áður sagði. Ég og mamma ákváðum að bjóða bara nánustu ættingjum það er að segja ömmum, öfum, langömmum, langöfum og svo systkinum og systkinabörnum foreldra okkar og svo náttlega systkinum Togga. :O) Þannig að því miður eru ekki vinum og öðrum ættingjum ekki boðið en það er reyndar líka út af´því að við þurftum að draga mörkin einhversstaðar. Veislan verður haldin heima hjá foreldrum mínum og þar sem húspláss þar leyfir ekki múg og margmenni og við ætlum að hafa matarboð en það bíður líka upp á færra fólk. Ég vona að enginn móðgist út í mig vegna þessa en ef þið hin viljið koma í heimsókn á Borgafjörð að skoða litla kútinn okkar þá er það velkomið og þá gef ég ykkur kaffi og kannski með því ef e-ð er til eða bara þegar þið eigið leið um Reykjavík. ;O) Ég býst allavega við að við munum vera einhverja nokkra daga fram yfir skírnina.

En í sambandi við nýjar myndir, þá var nú meiningin að fara að setja þær inn, ég tek svona hvað mest megnis myndir af litla snúllanum þessa dagana því pabbinn er svo upptekin við vinnu og skóla.
Nóg í bili allavega af bloggi ég skrifa kannski meira við tækifæri þegar e-ð er að frétta.

Kveðja

Mamma. Pabbi og Björn Jóel.

15. október 2008

Hæ allir.

Í gær fór ég með Björn Jóel í 6 vikna skoðun þó svo að hann hafi nú ekki alveg verið orðin 6 vikna, hann verður það á föstudag. Hann var sem sagt buin að þyngjast og stækka alveg helling. Hann var orðin um 62 cm og vóg rúm 5800 gr, sem sagt bara stór strákur. Hjúkkunni fannst hann líka vera mjög eftirtektarsamur, það er að segja hann gat einbeitt sér að því að horfa lengi á það sem hún sýndi honum og miðað við aldur þá var það víst nokkuð gott. Mamman hefur náttlega ekkert vit á hvernig smákrakkar eiga að þroskast eðlilega, var bara svo ánægð að heyra hjúkkuna segja jákvæða hluti um litla angann sinn.

Það er svo sem ekkert að frétta, allt gengur bara sinn vanagang hérna á litla heimilinu, mamman er heima og pabbinn er að vinna á fullu.
Ætlaði náttlega að láta líka vita að við settum inn myndir í gærkveldi, bara svo það fari ekki framhjá neinum. Björn Jóel lítli er rosa kátur þessa dagana og hjalar út í eitt við settum smá svona sýnishorn. Toggi  setti sko video sem ég tók af Birni Jóel klukkan 3 um nótt þegar hann var bara of kátur til að fara að sofa. :O)
Þar sem við erum ekki á barnalandi eða barnaneti með síðu þá þurftum við að notast við eitthvern annan videospilara og Toggi vildi bara nota Youtube þannig að það er hægt að finna Björn Jóel þar líka. :O)

En nú er komið gott af mali, vonandi er e-ð skemmtilegt að frétta næst en það er auðvitað ekki hægt að stóla á það þegar maður er svona bara alltaf heima. ;O)

Bæó Mamma og Björn Jóel.

15. október 2008

Video

12. október 2008

Hæ öll.

Þetta er nú aldeilis buið að vera skemmtileg helgi, ég hélt upp á afmælið mitt núna um helgina. Það var haldið afmæli á laugardag fyrir vini okkar og á sunnudag fyrir ættingja. Það var rosalega gaman að hitta alla og vonandi voru allir ánægðir með veitingarnar, þar sem ég var sveitt í að búa til kökur og heita rétti. :O)
Ég fékk líka alveg fullt af rosalega fallegum gjöfum, flest svona stelpu dót sem ég elska. ;O) vei, vei ,vei!!!!!! Takk fyrir mig !!!!

Nú er komin einhver áætlaður dagur á hvenær á að skíra hjá okkur og það er búið að ákveða að skíra 1.nóvember næstkomandi. Það verður hjá mömmu og pabba í sveitinni á Borgó sem er voða skemmtilegt náttlega því þá geta ættingjarnir þar komið og skoðað gripinn. Við erum á leið austur þann 25 eða 26 október, það er allavega eins og planið er í dag. :O)
Þetta er náttlega ekkert spennandi þar sem allir vita nafnið á honum en samt það er ekki nóg að nefna það verður að skíra líka. :O)

En held að þetta sé komið gott í bili allavega, blogga meira seinna.

Kveðja Ída "gamla" mamma. ;O)

07. október 2008

Sæl öll..

Bara að láta vita að það eru komnar nýjar myndir af Birni Jóeli, já ég veit við erum rosalega löt við þetta.;O)
Önnur baðmyndasería ;O), reyndar svoldið skemmtilegri en sú fyrri og svo líka myndir þar sem Helga vinkona mín og skáfrænka hans ;O) kom í heimsókn. Hún er náttlega ekki alvöru frænka en hún má alveg vera frænka hans af því að hún er svo góð vinkona mömmu.:O)

Eins og þið sjáið þá er sá stutti orðin ansi mannalegur og búin að stækka alveg hellings.
Hjúkrunarkona frá ungbarnaeftirlitinu kom hérna síðastliðinn föstudag og þá var litli Björn orðin 5300 grömm. Henni leist alveg rosa vel á hann og sagði líka að það væri greinilegt að hann væri bara að jafna sig á þessum hraða andardrætti sem var að hrjá hann, sem gladdi mömmuna mikið.:O)

Nú er mamman bara orðin þrítug og finnur enga breytingu svo sem en samt sem áður maður er að verða assgoti gamall í árum en samt er ég svo ung í anda að þetta reddast nú alveg til fertugs allavega.;O),múhahahaha

En þetta er allavega nóg í bili, við komum með fleiri myndir við tækifæri.

Kærar kveðjur mamma og Björn Jóel.

06. október 2008

Jæja.. það kom að því.. pabbinn ætlar að blogga örlítið. Tilefnið er þrítugsafmæli mömmunnar í dag.

Þessi elska er núna búinn að fara 30 hringi í kringum sólina, og því ber að fagna. Afmælisveisla veður haldin núna um næstu helgi og ég er ekki ennþá búinn að finna afmælisgjöf... gúlp. Reyndar keypti ég blóm núna í morgun til að vinna mér inn smá tíma. En það er alltaf jafn erfitt að finna gjafir, góð gjöf má t.d. ekki á nokkurn hátt vera nýtanleg í einhver störf á heimilinu, hún má ekki vera eitthvað sem við bæði gætum notað, hún verður að koma frá hjartanu og ekki vera of ódýr (eða of dýr á þessum síðustu og verstu). Eftir standa afskaplega fáir hlutir. Ég mun í vikunni skunda af stað í verslunarmiðstöðvar og búðir í leit að hinni fullkomnu gjöf. Ég mun ransaka hvað gæti glatt hjarta konunar og um leið reyna að auka ekki viðskiptahalla þjóðarinnar stókostlega.

Annað er að Björn Jóel búinn að vera einstaklega þægur í dag. Við erum búinn að vera að erindast í allan morgun með hann með okkur og ekkert heyrst í honum. Núna næst þurfum við að kaupa nýja þvottavél þar sem hin gafst upp á kúkaklepruðum samfellum og pissublautum taubleyjum.

Jæja nóg í bili kannski ég bloggi aftur eftir svona 6--8 mánuði, en þangað til heldur Ída þessu gangandi.

já og Innilega til hamingju með afmælið elsku Ída mín.

Kveðja Þorgeir

05. október 2008

Jæja þá er best að skrifa nokkrar línur.
Það er búið að vera nóg að gera á litla heimilinu okkar, margir búnir að koma í heimsókn og bara nóg að gera.
Við litla fjölskyldan stefnum að því að fara austur í kring um 20.október í heimsókn til ömmu og afa á Borgafirði. Ég er farin að hlakka rosalega til að fara í sveitina og hafa það notalegt. :O)
Annars er svo sem ekkert að frétta merkilegt, Björn Jóel er bara rosalega góður og þægilegur, við fórum með hann í smá svona afmæli í gær og hann svaf allan tímann litli engillinn.:O)

Kannski eitt sem hefur gerst sem var mjög svo miður skemmtilegt en það var það að þvottavélin mín gaf upp öndina. :O( Hún var bara 5 ára og framdi sjálfsmorð eða það var það sem viðgerðarmaðurinn sagði. Hann sagði að þetta hefðu þeir ekki séð á þessu verkstæði í þessari tegund af vél áður (My luck) og hún hefði bara rifið reimar og víra í sundur í sér og það væri ekki hægt að útskýra hvað myndi valda þessu. Það kostar um það bil 40 þúsund að laga vélina þannig að við kaupum örugglega bara nýja vél þannig að blessuð sé minning Ariston þvottavélarinnar minnar.;O)

En ekkert meira að skrifa núna, við segjum kannski einhverjar fréttir næst og setjum inn myndir líka.

Þangað til næst.

Kv mamman

30. september 2008

....bara svona að máta nafnið, maður er ekki buin að venjast því að drengurinn heiti neitt annað en "lilli". ;O)
Allt er buið að ganga vel, ég er buin að fara út að ganga með Björn Jóel í vagninum núna síðastliðna tvo daga enda fékk ég ósk mína uppfyllta þegar ég bað um betra veður þarna í síðasta bloggi, meira að segja bara sól í sjónmáli. :O) Það er bara ansi hressandi að fara svona út að ganga en e-ð verð ég að skanna svæðið betur til að finna fjölbreyttari gönguleiðir, maður þekkir sig greinilega ekki alveg nógu vel hér í þessum nærliggjandi hverfum hérna, er e-ð aðeins of mikið utan að landi til þess. ;O)

Annars er bara allt gott af okkur að frétta við erum bara heima að hangsa ég og drengurinn því pabbinn er i vinnunni og skólanum og verður það e-ð lengur. Þetta er svo sem ágætt, ég er bara í húsmóðursstarfinu þessa dagana, alltaf tilbúin með matinn þegar pabbinn kemur heim og svo hugsa um barnið, hundana og heimilið að sjálfsögðu. :O)

En ég hef ekkert meira að segja núna, ég ætlaði líka að láta ykkur vita að Toggi setti inn nýjar myndir af drengnum okkar.

Kveðja mamman

27. september 2008

Bara að láta vita að myndirnar eru komnar, við tökum fleiri síðar og setjum inn fljótlega, ég lofa. ;O)

Kv Ídan

27. september 2008

Hæ allir.

Jæja þá er víst komin tími til að blogga, þar sem það er víst orðið svoldið langt síðan síðast, drengurinn bara 3 vikna í gær.:O)

Það er margt búið að gerast síðan lillimann kom heim, við erum buin að fá fullt af heimsóknum og hann er buin að fá mikið af fallegum gjöfum.
Það kom hjúkrunarkona frá ungbarnaeftirlitinu hérna síðastliðin miðvikudag og hún kom með fróðleiksmola sem ég tek svona til mín eins og mér finnst þurfa.;O) Henni fannst drengurinn anda svoldið of hratt og ákvað að hafa samband við vökudeildina og athuga hvað þeir myndu segja um þetta. Það var svo hringt klukkan hálf níu morguninn eftir og við beðin að koma með hann uppeftir sem fyrst því það átti að skoða hann. Það var alveg tæplega 3 klst prósess og þar var hann þreifaður í bak og fyrir og tekið blóð og röntgenmyndir og ekkert kom út úr því. Læknirinn pantaði því tima í hjartaómun til þess að vera 100 % viss um að það væri örugglega í lagi með hjartað í barninu og það var sem betur fer allt í lagi með það. Þannig að hjartalæknirinn sagði að þetta væri ekkert til að hafa áhyggjur af, þetta væri stór og gerðarlegur krakki og hann myndi alveg jafna sig. Mikill léttir fyrir okkur allavega, en það borgar sig samt alltaf að vera samt með vaðið fyrir neðan sig. :O)
Drengurinn er buin að vera mjög góður svona yfirleitt, það er stundum svona pirringur í mallakút held ég allavega og þá er ekkert sem ég geri fyrir hann nógu gott og hann er bara argur útí móður sína sem reynir að gera allt fyrir hann. ;O) En þetta er svona pirringur sem er yfirleitt bara stuttur og hann jafnar sig yfirleitt fljótt. Hann er ennþá mjög góður á nóttinni, vaknar yfirleitt bara einu sinni yfir blánóttina og svo bara sitt hvoru megin við morgunn og kvöld.
Við erum búin að fara einu sinni út að labba í vagninum en það var nú bara stutt þar sem það gerði bara hundleiðinlegt veður þegar við vorum komin út. Það er heldur ekkert svo auðvelt að fara út að labba hér í borginni þessa dagana með ungabarn, það er alltaf rigning og rok, ég get svo svarið það. :O( Ég er bara að bíða eftir svona þolanlegu veðri, þarf sko ekkert að vera sól og blíða eða neitt þannig bara svona þannig að maður fjúki ekki eða rigni ekki niður og hér með panta ég svolleiðs. ;O)

Svo svona að lokum er komið að því að tilkynna hvað drengurinn skal heita, við erum ekki búin að ákveða skírnardag og þar sem nafnið var ákveðið fyrir svo lifandis löngu síðan þá finnst mér bara best að fara að nota það, þannig að það er ekkert leyndó lengur. Hann á að heita Björn Jóel Þorgeirsson, Björn eftir pabba mínum og Jóel er bara svona út í loftið af því að mér finnst það fallegt nafn og fékk að ráða því ég er svo frek sko ;O). 

Það fara að koma myndir inn á síðuna bráðum, það hefur bara ekki verið alveg nógu mikill tími hjá pabbanum að setja inn þessar blessuðu myndir, hann er alltaf upptekin við e-ð annað virðist vera. Toggi er sko farin að  vinna aftur í bili allavega og ég er bara ein með strákinn og svo er hann náttlega líka alltaf í skólanum á kvöldin þannig að það er sko nóg að gera hjá honum. Ég er samt alltaf að pressa á hann að gera e-ð í þessum myndamálum  en það gengur bara ekki betur en þetta, ég mun samt halda áfram að reyna, þetta er víst hann sem sér um þessar myndir en ég um að blogga. ;O)

Mér finnst ég að minnsta kosti vera búin að skrifa alveg hellings núna. ;O)
Takk fyrir allt kvittið og þeir sem hafa verið að gefa drengnum gjafir fá kærar þakkir fyrir, þarf samt að fá að þakka ykkur betur svona í eigin persónu þegar tími gefst.:O)
Ef einhver vill panta tíma í heimsókn til að skoða drenginn þá endilega hringið bara í mig og við finnum tíma, við erum alveg tilbúin til að fá heimsóknir, allavega eina á dag eða svo. ;O)

Þetta er allavega komið gott í bili. :O)

Kveðja frá Ídu, Togga og Birni Jóel.

19. september 2008

Sæl öll...

Jæja það hefur ekki farið framhjá neinum að lillinn okkar er komin heim. :OD VEI
Það hefur bara gengið alveg rosalega vel með drenginn, hann sefur og drekkur vel og er bara mjög góður. Stundum fær hann samt smá svona fýluköst og orgar úr reiði við foreldrana en það er aðallega þegar er sett ný bleyja og e-ð svona óþarfa vesen.;O)
Hann hefur hingað til bara vaknað einu sinni yfir nótt til að drekka en annars vaknar hann vanalega á ca 3 klst fresti.
Hann var vigtaður áður en hann var útskrifaður af spítalanum og þá vó hann 4930 grömm þannig að hann er búin að þyngjast um tæplega 700 grömm á innan við tveimur vikum sem verður að teljast bara alveg ágætt, svo var mér allavega sagt en ég hef svo sem ekkert vit á hvernig ungbörn eiga að stækka eðlilega.;O)
Við erum allavega í skýjunum yfir að hann sé komin hérna til okkar og við erum svona að venjast hugmyndinni að við séum orðin foreldrar og líkar bara mjög vel. :O)
Ég ætlaði svona aðallega að láta vita að það eru komnar myndir á síðuna sem voru settar inn í gær sem sýna drenginn slöngu og nálarlausan.
Svona að lokum langar mig að þakka vinum og vandamönnum fyrir allar gjafirnar sem litli kúturinn hefur fengið fyrir fæðingu og svo bara sent með póstinum, Takk fyrir okkur!!
Hann er búin að fá svo mikið af fötum að það er sko ekki hægt að segja að hann eigi eftir að ganga í neinum lörfum, verður sko alltaf alger gæi. ;O)

Þangað til seinna.
Kveðja
Foreldrarnir og litli kútur

15. september 2008

Jæja, nú er komið að því....lilli fær að koma heim á morgunn!!!!vei vei vei :OD
Ég bara trúi því samt ekki fyrr en ég fæ hann í bílstólinn og við erum á heimleið. Mér er samt sagt að hann komi heim þannig að ég verð bara að trúa því. Við foreldrarnir förum sko á morgunn um 11 leytið fyrir hádegi og þá verður hann útskrifaður ef það er eitthvað að marka sem okkur hefur verið sagt. ;O) 
Á morgunn byrjar sem sagt eiginlegt fæðingarorlof hjá okkur af því að við fáum auka orlof vegna veikinda barns sem er náttlega ekkert annað en sanngjarnt finnst mér allavega, ekki buið að vera neitt orlof heldur bara ferðir á spítalann fram og til baka.

Allavega ég segi ekkert meira í bili, ég vil þakka öllum sem hafa skrifað í gestabókina, alltaf gaman að sjá að vinir og vandamenn eru að fylgjast með okkur. :O)
Ég skrifa örugglega aftur fljótlega og læt vita hvernig gengur með lillan hérna heima, ætli það verði ekki skrautlegt enda reynsluleysið að drepa mann en við hljótum nú að læra á þetta allt saman með tímanum. ;O)

Kveðja glaða mamman. :OD


13. september 2008

Jæja þá er ég að koma með smá svona fréttir. Við töluðum við barnalækninn á vökudeildinni í dag og hún sagði að lilli þyrfti að vera einhvern tíma í viðbót á spítalanum, mér til mikilla vonbrigða.:O( Ástæðan fyrir þessu er sú að einhver gildi (CRP???) í sambandi við sýkingu þurfa að vera lægri til þess að hann sé alveg "save" til að fara heim og því þarf hann að vera á sýklalyfjum kannski í 2-3 daga í viðbót sem þýðir að hann er ekki að koma strax heim.búhú.....:O(
Einnig finnst þeim hann anda of hratt ennþá þannig að það er ekki alveg eins og það á að vera. Þetta eru slæmu fréttirnar en svo eru góðu fréttirnar, því maður þarf alltaf að líta á björtu hliðarnar. Hann er laus við mónitórinn, sonduna og svo er öndunin búin að lagast helling. :O) Hann má líka drekka af brjósti eða úr pela í staðin fyrir í gegn um nefið og hann er ekkert smá duglegur að drekka, hann tekur skammtinn sinn á 15 mín eða svo, það er reyndar svoldið erfiði fyrir hann greyið en hann er samt svo duglegur finnst mömmunni. ;O)

Annars er ég bara nokkuð hress, svoldið þreytt svona við og við, en það er allt að koma til samt sem áður.
Maður er svoldið leiður á að þurfa alltaf að fara fram og til baka niður á landsspítalann og líka bara af því að það er svo tímafrekt, maður er ekki fyrr komin heim þegar maður þarf að fara aftur svo ég tali nú ekki um bensíneyðsluna. Það er svo sem allt þess virði og maður getur ekki verið að vorkenna sér þegar margir eru í milljón sinnum verri stöðu. Við förum sko klukkan 14, 17 og 20 þá þarf litli kútur að fá að borða og stundum fer ég klukkan 8 á morgnana þegar ég er hress sem hefur því miður ekki alltaf verið. Það er síðan lokað á milli 9-12 og þá má enginn koma sem er ömus en þá þurfa læknarnir vinnufrið. Svo bara stend ég ekki í því að fara á næturnar ég verð víst að hvílast svona þegar ég get. ;O)

En ég held ég hafi ekki ekkert meira að segja í bili, vonandi verður næsta færsla um heimkomu lillans okkar.

P.s. Við settum inn nýjar myndir(og nokkrar eldri), þið getið skoðað þær hér

Kveðjur frá mömmunni og pabbanum.

10. september 2008

Jæja þá er maður að sjá fyrir endanum á þessu öllu saman. Lilli má í fyrsta lagi koma heim á laugardaginn jafnvel aðeins seinna, vona bara allt það besta. Hann er ennþá með aðeins of hraðann andardrátt en samt er það nú allt að lagast. Ég er allavega alveg byrjuð að fæða hann þó að hann drekki ennþá úr sondu til þess að hann verði ekki fyrir of miklu öndunarálagi. Það því eru bara reglulegar mjaltir hérna heima og á vökudeildinni sem er frekar svona leiðinlegt ferli ;O) en samt þetta er fer að taka enda.

Í dag seldum við svo annan bílinn (Toyotuna)og fengum allavega sanngjarnt verð fyrir hann skulum við segja enda er þetta bíll sem hefur meira en lítið þjónað sínum tilgangi fyrir okkur en á svo sem fullt eftir. :O)

En nóg í bili er á leið á vökudeildina, kem með meiri fréttir seinna.

Kveðja Ída

09. september 2008

Hæ öll.

Jæja þá er lillinn minn orðin 4 daga gamall og er ennþá á vökudeildinni. Við getum ekki beðið eftir að fá litlu dúlluna heim, það er ansi erfitt að skilja hann alltaf svona eftir á vökudeildinni aftur og aftur. Okkur er sagt að hann geti líklega komið heim á föstudag eða sunnudag en ég vill ekki vera að gera mér of miklar vonir um að það geti ræst. Hann er á sýklalyfjum og þess vegna verða þeir að halda honum. Andardrátturinn er líka ennþá svoldið hraður hjá honum svona við og við en það hefur lagast alveg helling samt. Hann er laus núna ur hitakassanum og er bara komin í vöggu og á aðra deild meira að segja sem er miklu meira kósý fyrir okkur að heimsækja hann á. En ég verð víst vel við una og reyna að hvíla mig svona úr því að ég er heima hvort eð er.

Jæja hef ekki meira að segja í dag, kem með fréttir seinna.

Kveðja mamman

07. september 2008

Jæja nú er ég komin heim en því miður fékk ég ekki að taka litla kútinn minn með mér. :O( Hann verður kannski í 2 daga í viðbót á vökudeildinni vegna þess að hann varð smá  lasin greyið og það þurfti að gefa honum sýklalyf eða réttara sagt læknirinn tók ekki neina sénsa með að gera það ekki. Þetta er reyndar frekar leiðinlegt að koma svona heim án hans en hann er að minnsta kosti í góðum höndum á spítalanum.

Eins og þið hafið kannski heyrt þá gekk fæðingin ekki nógu vel, andlitið vísaði upp og það hægði á öllu ferlinu. Á endanum snéri hann því síðan rétt en þá var mamman orðin svo lúin og litli anginn buin að vera svo lengi á leiðinni að það var ákveðið að taka hann með sogklukku til að flýta fyrir öllu saman. Þvílík gleði og léttir þegar þessu lauk svo en þá þurfti lillinn að fara beint upp á vökudeild og ég sá hann voða lítið svona fyrst.
Við erum með annan fótinn þarna upp á spítala hjá honum og bíðum bara spennt eftir að hann fái að koma heim.

Takk fyrir kommentin sem ég er buin að fá hérna frá ykkur, það hefur verið gaman að lesa yfir þetta og sjá að maður þekkir fullt af góðu fólki. :O)
En ég er að hugsa um að segja þetta gott í bili og setja inn færslu seinna þegar e-ð er að frétta.

Kveðja Ída

 

05. september 2008

Hérna koma smá upplýsingar um stöðuna.
5. september 2008, klukkan 07:30 fæddist drengur Þorgeirsson.
hann vó 17 merkur (4250 gr) og var 55 cm

Til að gera langa sögu stutta þá var sá litli ekki alveg búinn að setja sig stellingar fyrir ferðina í heiminn. Hann lét bíða svolítið (25 tíma eða svo) eftir sér en kom svo með látum. Ída er núna að hvíla sig eftir átökin og sá litli (4250gr) er á vökudeild að hvila sig þar.

Jæja nóg í bili ýtarleg saga kemur seinna.

Kveðja,
Þorgeir.

03. september 2008

Hæ allir.

Í dag er ég komin 41 viku og 1 dag og ég er alveg að verða geðveik á því að bíða eftir að lilli komi út. Ég fór sko í skoðun í gær og það var ekkert hægt að losa um belgina til að hjálpa þessu af því að leghálsinn var ekkert búin að styttast og það er víst skilyrðið fyrir að það sé hægt að framkvæma þessa belgjalosun. :O(  Nú er ég líka á fullu að reyna einhver svona húsráð sem ég hef heyrt um en er náttlega ekkert vitað hvort virki eða ekki, í þessum fæðingarbransa er víst ekkert hægt að vita með vissu sem er frekar pirrandi að mínu mati. Ég til dæmis búin að vera með fyrirvaraverki sem voru ekki fyrir neinu greinilega, þurfti að vera með verki til einskis.:O(
Það sem ég reyndi til dæmis í gær var að ég fór og keypti einhverja rándýra olíu sem ég heyrði um sem maður getur baðað sig upp úr eða smurt á bumbuna eða í nárann og þessi olía á að koma fæðingu af stað, örvar hormónana eða e-ð álíka.Olían er mjög sterk, það þarf að blanda hana með venjulegri nudd eða baðolíu fyrir notkun og það er ekki mælt með því að óléttar konur noti hana nema sem eru komnar á réttan fæðingartíma því þær gætu annars misst fóstrið. Ég hef  heyrt sögur um að þetta virki, en ég er búin að fara 2svar í þetta blessaða bað í gær og það gerðist allavega ekkert, auðvitað ekki hjá mér. :O(  En ég er reyndar að fara að halda áfram í dag að fara í svona bað í dag. En þetta er alls ekkert það eina sem ég er búin að reyna og er að reyna því ég er að gera ýmislegt annað líka svona með sem maður hefur heyrt að gæti virkað.
Núna er síðan verkfall ljósmæðra að fara að byrja á miðnætti  (týbískt) og ég gæti ekkert verið í hreiðrinu ef ég myndi fæða barnið, meðan verkfallið er þá er það lokað. :Ó( Ég er liggur við að spá í að taka bara á móti honum sjálf hérna heima, minna vesen sko.
Eins og ég var buin að segja þá eru mamma og amma væntanlegar hérna um helgina og það setur nú ennþá meiri pressu á mig því meiningin hjá þeim var að sjá lillan náttlega ekki bara hvalrekan mig, þær þurfa líklega að hætta bara við það og koma seinna, örugglega bara um þarnæstu helgi.
Ég verð sett af stað á mánudag eða þriðjudag ef ekkert verður búið að gerast og það er sko ekki tilhlökkunarefni í mínum huga allavega og ég reyni að halda í vonina að það gerist ekki en það væri þá ekkert það eina sem hefur ekki farið eins og ég vildi. búhú....:´O(
Ég er ekki mjög skemmtileg í þessu blessaða bloggi í dag en það er líka pínu skiljanlegt að ég sé ekki í skýjunum finnst mér allavega. :O/

En allavega nóg af tuði og væli.....
Ég læt heyra í mér bara.

Kveðja Fýlupokin Ída

01. september 2008

Jæja...þá held ég að það sé deginum ljósara að barnið kemur ekki í ágúst. Ég fæ septemberkút...en hvenær er erfitt að spá. Ég er allavega orðin mjög leið á að bíða eftir honum en þetta hlítur að fara að koma ég krossa bara puttana.

Þangað til seinna.
Læt allavega vita ef e-ð gerist.

Túrúlú Ída

30. ágúst 2008

Hæ hæ alle sammen...

Ég ætlaði bara að vera með smá svona tilkynningarskildu hérna og láta vita að ekkert er að gerast í fæðingarmálum. púff púff púff :O(
Mér finnst þetta ekki gaman þessi bið og sérstaklega ekki af því að þann 28.ágúst þá var ég með fyrirvaraverki og hélt að það væri bara að koma að þessu en allt kom fyrir ekki, ekki lét lilli sjá sig þann daginn.
Oddný vinkona átti afmæli þennan dag og við vorum að vona að barnið kæmi á þessari dagsetningu líka af því að hún var svo flott "28.08.08" but nooooo.
Í dag á svo Hildur vinkona afmæli og eins og er þá finnst mér ég ekkert vera að fara að fæða en hver veit hvað gerist í dag, kannski fær hún hann í afmælisgjöf, mar veit ekki. ;O) hehe
Mér sýnist allt stefna í að þetta verði september barn en ekki ágúst eins og ég hélt alltaf. En það verður bara að hafa sig víst enda ekkert verra svo sem.
Ég fer í skoðun þann 2.september n.k. og ljósmóðirin sagði að hún ætlaði að skoða að losa um belgina þegar hún væri buin að skoða mig ítarlega og sjá hvort ég væri tilbúin í það. Vona að það þurfi ekki að koma til þess en við skulum sjá til bara.
Mamma og amma ætla að koma  um næstu helgi og þá er eins gott að lilli verði komin. ;O)

En ég læt vita af mér hérna reglulega allavega, en vonandi verð ég með einhverjar jákvæðar fréttir næst. Allir að senda fæðingarstrauma til mín. ;OÞ

Kveðja óþolinmóð Ída

26. ágúst 2008

Hæbbs..

Ekkert að gerast ennþá, 40 vikur og 1 dagur. :O(
Langaði líka að láta vita að teljarinn hérna á síðunni er bilaður. Það er eins og það sé 26.ágúst í dag þegar það er 27 í rauninni. Ekki alveg nógu töff en þetta hlítur að vera hægt að laga, set kannski Togga í málið.

Kv Ída

25. ágúst 2008

Hæ allir.

Í dag er ég komin 40 vikur og í dag er dagurinn sem ég ætti að eiga barnið. Ég finn ekkert ennþá allavega en ég er samt búin að vera að finna svona fyrirvaraverki núna undanfarið. En núna er ekkert að gera nema bíða rólegur og sjá til hvort þetta komi nú ekki í þessari viku.

Takk fyrir að vera dugleg að kvitta og ég læt vita af mér. ;O)

Kv Ída

23. ágúst 2008

Hæ allir.

Jæja það sem er kannski helst í fréttum er að við skötuhjúin vorum að kaupa nýjan bíl í gær. Við ákvaðum að kaupa svona barnvænari bíl þar sem vagn og aðrir fylgihlutir passa í bílinn.;O) Við keyptum  svartan Ford Escape árgerð 2003 með fjóhjóladrifi, leðri, cruise control, sjálfskiptingu og fleiru fíneríi og það er ansi gott að keyra hann ég verð að segja það.:O) Hinir bílarnir okkar eru komnir báðir á sölu og við krossum bara puttana að þeir seljist sem fyrst en svona getur maður bara verið drífandi stundum, sumir myndu kalla það fljótfærni en hey svona geta hlutirnir gerst hratt. Lilli fer allavega heim í öruggum bíl ég get huggað mig við það. ;O)

Það er ekkert að gerast í fæðingarmálum ég er ennþá bara að bíða komin 39 vikur og 5 daga og eins og sést hér á síðunni þá eru bara 2 dagar eftir í setta dagsetningu. Ég spái samt að hann muni láta bíða svoldið eftir sér litli kúturinn en ég hef samt sterkt á tilfinningunni að hann verði komin fyrir næstu helgi hvort sem sá spádómur rætist eða ekki það verður bara að koma í ljós.

En ég segi ekkert meir verð með smá svona "newsflash" hérna ef e-ð gerist. :O)

Kveðja Ídan

18. ágúst 2008

Hæbbs.

Bara svona að monta mig smá af nýja fína dótinu mínu (okkar Togga ) sem ég var að kaupa í dag. :OD

Ég var sko að fá vagn og barnabílstól alveg ógeðslega flott stöff finnst mér allavega. :O) Þetta var sko gjöf frá foreldrum mínum og foreldrum hans Togga, alveg rosa rausnó sko.

En allavega langaði bara að setja myndir af þessu inn ef þið viljið sjá, þið eruð örugglega að springa úr áhuga...hehehehe...það hafa allir náttlega óbilandi áhuga á svona barnadóti, múhahahahaha..

Leiter
Gadgetmom ;OÞ

18. ágúst 2008

Hæ allir saman.

Jæja loksins stóð ég við loforðið um myndirnar, þótt þær hefðu kannski mátt koma fyrr. Þið verið að fara inn í myndaalbúmið til að sjá allar myndirnar.

Þetta var sko ekkert slor fótósjút, við fórum sko niður í Nauthólsvík og vorum með smá svona uppstillingar eins og sjá má. ;O) Þetta var líka frekar seint að kvöldi en mér fannst það persónulega ekkert skemma fyrir.:O)

Í dag er ég komin 38 vikur og 6 daga, sem sagt 39 vikur sléttar á morgunn. Ég er bara farin að bíða eins og áður sagði, búin að öllu svo að segja, vei vei vei.

Ég ætla að láta þetta duga í þetta sinn, kannski verður bara lilli komin þegar ég set næstu færslu inn hver veit??

En allavega..
Takk fyrir kommentin og haldið því endilega áfram.
Kveðja Ída

15. ágúst 2008

Sæl öllsömul.

Ég vil byrja á að þakka öllum fyrir að kvitta í gestabókina og vera bara sem duglegust við það, mér finnst gaman að fá góðar kveðjur. :O)

Ég hætti að vinna í síðustu viku, einni viku áður en ég ætlaði mér en það var nú ekkert út af neinu heilsubresti svo sem, það voru bara svo vel mannað í afgreiðslunni aldrei þessu vant, þannig að ég bara bað um að fá að hætta í síðustu viku sem var bara notalegt svo sem. Gott að hvíla sig fyrir átökin. ;O)

Það er sko allt búið að vera á fullu hérna heima í hreiðurgerð, ég er búin að þrífa allt hátt og lágt og Toggi skilur ekkert í þessu bölvaða rugli í mér finnst ég bara klikk held ég en hann hefur samt verið litli þrællinn minn og hjálpað til. Ég er líka búin að kaupa allt sem þarf að kaupa fyrir smábarn nema það eina sem vantar núna er vagninn og bílstóllinn en ég er bara að bíða eftir að verslunin sem þetta verður keypt í fái sendingu frá USA með þessum hlutum. Núna er bara svona smotterí eftir sem svo sem engu máli skiptir bara svona fyrir verðandi móður að gera til að eyða tímanum, ekki nenni ég að hanga heima og gera ekki neitt allavega ekki allan liðlangan daginn.

Núna er ég komin 38 vikur og 3 daga og þetta styttist núna alltaf meir og meir. Barnið tekur svo mikið pláss orðið að ég get bara ekki ímyndað mér að það komist meira fyrir svei mér þá. Núna á ég samkvæmt öllu að eiga eftir ca 11 daga en þetta gæti komið núna bara þess vegna því barnið er tilbúið, það kæmi ekki á óvart samt að lilli léti aðeins bíða eftir sér en þá verður bara að hafa það víst.

Ég var í mæðraskoðun i gær og allt var í góðu gengi. Ég spurði ljósmóðurina hvort hún gæti eitthvað fundið hversu stórt barnið væri og hún gat það svona ca og hér um bil og eftir þónokkrar þreyfingar þá giskaði hún að barnið væri orðið 16-17 merkur. Mér finnst það nú bara ágætt og vill bara að barnið komi þá núna, mér finnst þetta alveg nógu stórt.

Myndirnar eru náttlega alltaf á leiðinni sko ;O)....sjáum til hvort ég geti platað Togga til að setja þetta inn á næstu dögum sjáum til, ég ætla allavega að hætta að lofa því.

En þangað til næst ....

Kv Ídan

29. júlí 2008

Hæ allir.

Jæja nú vorum við hjónaleysin að koma úr enn einu ferðalaginu en við skelltum okkur austur til mömmu og pabba um helgina. Það var alveg æðislega gaman og veðrið var alveg guðdómlegt, næstum 26°C hiti.:O) Svo voru góðir vinir líka til að deila helginni en Hildur, Helga og Villi komu líka. Allir voru að fara á bræðslutónleikana nema ég, meira að segja Toggi fór líka, hann var svo heppin að mamma og pabbi gáfu honum miðann í afmælisgjöf því hann var ekki buin að kaupa hann og þeim miða var reddað beint frá frægasta manni Borgarfjarðar honum Magna, audda er mamma með samböndin á hreinu. ;O) Ég er samt svoldið fegin að þetta er síðasta ferðalagið mitt fyrir fæðinguna, við keyrðum sko austur í einum rykk ég, Toggi og Hildur og ég var alveg þreföld af bjúg þegar ég kom á leiðarenda sem er alveg ógeð. Tærnar á mér voru eins og feitar grillpylsur þær voru svo breiðar hélt sko að þær myndu springa, þannig að við skiptum ferðinni í tvennt á leiðinni til baka og gistum  á Akureyri sem var ekkert smá kósý og æðislegt, leigðum okkur sko bara sumarbústað og keyrðum svo restina í dag. Það kom mun betur út, tærnar litu  bara út eins og venjulegar pylsur en ekki feitar grillpylsur sem er nú skárra. ;O)

Akkúrat í dag er ég komin 36 vikur og ég er mjög spennt og komin á fullt í hreiðurgerð er sko búin að vera á fullu að kaupa allt sem þarf fyrir svona ungabarn og skoða og spá og spegúlera. Það er sko samt nóg eftir ennþá er ekki nærri tilbúin en samt finnst mér eins og allt sé að falla í rétt mót.:O) Núna er ég alltaf að kafna úr hita sem er ömurlegt sérstaklega þegar maður er inni og getur varla sofnað eða hreyft sig fyrir hita en ég er ekki að segja að ég vilji ekki hafa sól og blíðu samt. ;O) Við kláruðum líka foreldranámskeiðið í dag og  það endaði á að við skoðuðum fæðingardeildina og allt sem því tilheyrir og mér fannst þetta rosalega raunverulegt allt saman en samt svoldið spennandi bara. Núna ratar maður allavega á réttan stað sem er náttlega alveg nauðsynlegt svona í ljósi þess að það verður örugglega nóg panikk á manni fyrir. ;O)

En ég hef svo sem ekkert meira að segja í bili, ég er alveg buin að svíkja þetta með bumbumyndir en eins og þið heyrið þá höfum við engan tíma í þetta bara sko ;O) hehe En svona án gríns þá ætla ég að fara að biðja Toggann að smella af mér myndum þegar ég lít ekki alveg út eins og versta drusla.;O)

Kveðja mamman.

21. júlí 2008

Sæl öll.

Á morgun eru 35 vikur komnar og orðið rosalega stutt í að lilli komi í heiminn og það er með blöndu af tilhlökkun að sjá hann og kvíða að fæða hann sem ég skrifa þessar línur.;O) Nei, svona án gríns þá er orðið mun meira álag á líkamann að bera barnið og ég orðin mun stirðari og þyngri á mér þannig að það verður bara gott að vera búin að þessu þó svo að því muni fylgja sársauki. Ég hlakka ekkert smá til að geta hlaupið og hoppað aftur og hreyft mig óhindrað, það verður fínt. :OD

En svona að öðru: Ég og Toggi erum að leggja upp í smá svona ferðalag um næstu helgi sem verður líklega síðasta ferðalagið mitt þetta sumarið, svo sem eðlilega ég segi það ekki. Við verðum fram á þriðjudag  og erum sko að fara austur á land, alla leiðina á Borgafjörð eystri í smá skreppitúr því það er mikið um að vera þar þessa helgi. Það verða bræðslutónleikarnir haldir þriðja sumarið í röð og í þetta skipti verður Damien Rice og fleiri að spila. Ég mun taka gest með mér austur en hún Hildur vinkona mín ætlar að fá að fljóta með og sjá hvernig sveitalýðurinn skemmtir sér. íha :O) Það verður fullt af vinum og vandamönnum þarna líka og það er kannski svona ein af ástæðunum fyrir að mig langaði svo mikið að fara, því ég er ekki að fara á sjálfa tónleikana, enda ekki sniðugt að standa svona lengi fyrir kasólétta tjellinguna ;O) hehe...

Annars er ekkert að frétta svo sem, allt með kyrrum kjörum, ég er reyndar að fara á foreldranámskeið á morgunn með Togga og þá fær maður vonandi að vita eitthvað um þetta allt saman, ekki veitir nú af sko og þetta eru alveg 3 skipti. Svo náttlega er komið að því að maður þarf að klára að kaupa það sem þarf og græja allt, þvo, þrífa og allt sem tilheyrir. Ég var nú bara fyrir helgi að byrja að vinna 60% og mun líklega hætta alveg að vinna  2 vikum fyrir fæðinguna. Mér fannst það ekki veita af að minnka við mig, ég er farin að sofa eins og ég sé andsetin, ég vakna sko á tveggja tíma fresti og á alveg ótrúlega erfitt oft með að sofna aftur, bara pirrandi og leiðinlegt sko.

En ég ætla að hætta þessu tuði núna og biðja ykkur vel að lifa. Ég ætla að reyna að vera líka duglegri að blogga en og svo verðum við að fara að setja inn bumbumyndir því þetta hefur verið gert á 5 vikna fresti hingað til þannig að það borgar sig að breyta ekki út af vananum með það. :O)..

Later

tilvonandi mamman

Bara svona í blálokin, Ég ætla að óska pabbanum (Togga) til hamingju með afmælið því hann er 28 ára gamall í dag :O* knús og kossar .....

10. júlí 2008

Hæ öll.

Mig langaði bara að skrifa nokkrar línur í tilefni dagsins og líka af því að það er rosalega langt síðan síðast. Ég er í frí í dag og á morgunn og líka á mánudaginn..vei vei vei....

Í tilefni þess er ég og Toggi að  fara norður á land í dag í smá heimsókn til mömmu sem er stödd þar og munum við vera á Sauðanesi sem er staður rétt hjá Siglufirði. Ég er vöknuð snemma, klukkan er sko rétt 8 um morgunn og ég er að fara að pakka og náttlega aðeins aðeins taka til svo maður komi nú ekki aftur heim í draslið ;O).  Það er líklega óþarfi að segja að bóndinn er ekki risinn úr rekkju og það verður örugglega einhvers að bíða í það ef ég þekki morgunsvæfuna rétt, en þá verður honum sko pískrað út í að pakka og svolleiðs..múhahaha

Í dag er ég ég komin 33 vikur og 2 daga á leið og mér finnst þetta vera farið að styttast rosalega. Núna er ég oftar þreytt og fæ stundum smá verki sem eru víst eðlilegir. Ég er víst að fara að minnka vinnuna eftir næstu viku sem er alveg mjög svo kærkomið og ekki síst svo ég geti kannski eitthvað farið að plana og gera fyrir komu barnsins. Ég nefnilega er þannig að ég þoli ekki að vera með allt á síðustu stundu það bara gerir mig tens ;O). Eins og ástandið er núna þá er ég bara komin upp í sófa eða rúm áður en ég veit af eftir vinnuna og kannski eitthvað smotterí hérna heima sem fylgir víst að eiga heimili.  :O/ Svo ætla ég að hætta að vinna tveimur vikum fyrir 26.ágúst, til þess að vera nú ekki eins og ofnotuð tuska í fæðingunni hehe.

En ætli ég fari ekki að gera eitthvað að viti svo að ég komist í fríið. Takk fyrir að vera dugleg að kvitta í gestabókina og þið vitið að hún er fjölnota það má alveg kvitta oftar en einu sinni ef þið hafið ekkert betra að gera. ;O)

Túrúlú

Lilta mamman.

28. júní 2008

Hæ allir.

Ég er nú búin að vera alla vikuna að biðja Þorgeir að setja inn bumbumyndirnar og loksins gerði hann það í gær. Það er að vísu ekki hægt að sjá þær á listanum, þið verðið bara að fara inn í eldri myndir til þess að geta séð þetta allavega í bili.

Það er ekkert að segja í bili, set inn blogg við fyrsta tækifæri.

Ída

23. júní 2008

Góðan dag allir.

Jæja nú er tími til að ræða aðeins um helgina, sem nýttist mjög vel skulum við segja og var bara heldur viðburðarík. Hver segir annars að maður þurfi að fara á djammið til að hafa einhverjar djúsí sögur að segja ;O)...múhahaha

Ég svaf út á laugardag eins og ég ætlaði (mikið var það annars gott) svaf held ég í 10 tíma eða e-ð svolleiðs sem er rosalega mikið að mínu mati. Þetta byrjaði allt á því að við ákváðum þarna þegar við vöknuðum að fara bara að klára að pússa og mála niðri og skelltum okkur bara í það. Byrjuðum reyndar á að fara í Verkfæralagerinn (alveg kostuleg búð) og græja okkur upp og svo fórum við í Byko og keyptum ljós í staðinn fyrir ljótu ljósin sem voru fyrir og að sjálfsögðu var allt í stíl. ;O)

Fyrst var byrjað á að klæða allt í plast og stúka af svæðið sem átti að pússa, (ógeðslega mikið búið að þurfa að spassla) sem var bara sneddí þegar uppi var staðið.  Það var nefnilega bara eins og það hefði snjóað duglega í eldhúsinu og í nágrenni við það,allt í ryki, en hitt sem var varið slapp allt sem betur fer en þetta var algert ógeð sko.. Þannig að við þurftum að þrífa þetta allt saman á eftir og það tók um það bil tvo leiðinlega tíma. Svo var tekið til við að klæða allt í plast og límband til að subba ekki allt út (Ekki vanþörf á þegar tveir hrakfallabálkar fara saman að mála ;O) )og svo að bara farið í að mála. Við náðum meira að segja að mála tvisvar yfir þetta en við vorum líka ekki búin fyrr en um 11 leytið um kvöldið og þá er hægt að segja að ég (hvalurinn) hafi verið algerlega búin á því bara. Daginn eftir (sunnudagurinn) fór svo í að taka til eftir framkvæmdirnar og hengja upp nýju ljósin og þetta kemur bara svo fínt út, ég er allavega mjög ánægð með þetta.:OD

Ég átti reyndar eftir að segja frá því að sunnudagurinn byrjaði reyndar mjög illa.  Það var nefnilega hringt í símann hans Togga  klukkan 06:30 um morguninn og okkur tilkynnt um innbrot númer tvö heima hjá tengdó, þá voru þjófarnir að koma að ná í restina af dótinu sem þeir voru búnir að taka til frá því 17.júní. Þeir brutu því aftur upp sama glugga og þeir höfðu komið inn um áður en núna náttlega fór nýja Securitas kerfið í gang þannig að viðkomandi tók bara stroll beint út um svalarhurðina sem er þarna skammt frá og ég er nokkuð viss um að hann/þeir láta ekki sjá sig aftur. Löggan fann fótspor eftir ræningjann á sófanum sem er skammt frá glugganum sem var brotin upp og ég get sko sagt ykkur það að þetta var ekki jafn professional og í C.S.I.  Ég stóð náttlega álengdar og heyrði löggumennina tala saman og samtalið var eitthvað á þessa leið:

Lögga # 1 starir á sporið og spyr hina lögguna "Erum við ekki með málband út í bíl?". Lögga # 2 svarar þá "Nei, það er ekki út í bíl, helduru að við getum ekki bara notað þennan penna?" hann var sko með forlátan Bic penna  í höndunum ............og það var nákvæmlega það sem þeir gerðu plús það að smella einni mynd af herlegheitunum.Tækni smækni hvað ???:OÞ

Svona rétt í lokin:Við tókum bumbumyndir í gær kveldi sem við setjum inn í kvöld þannig að ég er ekki alveg búin að svíkja loforðið. Kannski set ég líka nokkrar framkvæmdamyndir svona með til að sýna hvað við skötuhjúin erum rosa dugleg í hreiðurgerð.....:O) Þannig að ég kveð þangað til næst...

Mamman...

 

 

                                                                                      

20. júní 2008

Hæ hæ.

Núna er helgin bara fram undan og ekkert nema gott um það að segja :O). Það eina sem kemur upp í hugann er "sofa út" því ég hef e-ð verið aldeilis þreytt núna í vikunni, hef ekki hugmynd um afhverju reyndar, hef ekkert verið e-ð meira að gera núna en vanalega. Planið fyrir helgina er samt sem áður assgoti stórt skal ég segja ykkur, við vorum sko að spá í að fara að sparsla og mála restina sem eftir er hérna á miðhæðinni, þótt fyrr hefði verið segi ég nú bara. Annars er þessi föstudagur ekki búin að vera neitt sérstaklega góður, hver harmleikurinn elt hvern annan og ég alltaf ergilegri fyrir vikið, held að ég fari bara að sofa.:O/

Það er annars helst að frétta að búið er að setja upp Securitas þjófavarnarkerfi heima hjá Tengdó þannig að nú getur enginn brotist þar inn og svo fengum við líka þjófavarnarkerfi hérna heim að vísu ekki tengt neinu fyrirtæki það lætur okkur sjálf  bara vita með látum eða símleiðis ef einhver brýst inn en það er kannski bara alveg nóg. Við erum sem sagt komin með tvöfalda þjófavörn hérna heima, allir sem hafa komið í heimsókn vita hvað ég meina því hundanir bilast ef einhver sem þeir þekkja ekki koma nálægt útidyrahurðinni ;O).

Svona að lokum: Toggi setti inn nokkrar myndir, ekki sérlega góðar að mínu mati, mér finnst ég helst til minna á e-ð feitt spendýr á þessum myndum en maður verður víst að sætta sig við útlit sitt er það ekki málið. Fleiri myndir eru fyrirhugaðar, við ætlum að taka bumbumyndir örugglega um helgina og þeim verður skellt þá inn við tækifæri.

Þangað til hafið það nú gott um helgina elskurnar mínar

Kveðja belgmikla spendýrið ;O)

18. júní 2008

Sæl og blessuð.

Það var sko mikið að gerast í gær skal ég segja ykkur. Við hjónaleysin skelltum okkur á Þingvelli í tilefni dagsins og skoðuðum almannagjánna og svona næsta nágrenni í góða veðrinu. Ég hef nú ekki farið á Þingvelli síðan ég veit ekki hvenær, held bara með mömmu og pabba þarna árið 89 eða e-ð álíka. ;O) Hundarnir fóru náttlega með okkur og voru alveg í skýjunum að geta hlaupið og leikið sér, litlu dúllurnar:O) .

Það sem gerðist líka í gærkvöldi var mjög sláandi!!! Það var sko brotist inn til tengdó sem eru þessa stundina stödd í Tyrklandi (greyið þau) og var haft samband við okkur í gær um hálf 12 leytið. Löggan kom þá á staðinn og skoðaði húsið í leit að sönnunargögnum. Það var svo sem ekki tekið neitt rosalega mikið að við höldum, kemur eiginlega bara í ljós þegar þau koma heim og fara yfir allt dótið sitt. Það sem versta var samt að  þjófarnir voru búnir að láta gammin geysa og rústa öllu....hella úr skúffum og rusla öllu út um allt. Það sem var svoldið skrítið líka var að þeir ætluðu greinilega að koma aftur vegna þess að þeir voru búnir að taka til ránsfeng niður í kjallara og skilja útidyrahurðina þar eftir þar ólæsta og ætluðu greinilega að koma síðan aftur seinna að ná í restina. Það var náttlega farið að sofa seint vegna þess að löggan var alveg smá tíma að þessu öllu saman  og núna er ég alveg að sofna í vinnunni, þarf sko allavega mína 8 tíma þessa dagana... :O/

En svona í lokin...eins og þið sjáið þá er búið að laga myndaalbúmmið en samt þarf að laga ýmislegt annað sem kemur bara í rólegheitunum. Svo stendur til að setja nokkrar hvalaskoðunarmyndir inn af móðurinni. ;O) þess má líka geta að í gær voru komnar 30 vikur og því 5 vikur síðan bumbumyndir voru settar inn.

Meira seinna mamman

 

 

10. júní 2008

Jæja nú er maður bara duglegur að blogga.. ;O)

Það er helst frá því að segja að hin tilvonandi móðir fór í mæðraskoðun í dag og það gekk bara eins og í lygasögu get ég sko sagt ykkur :OÞ. Ég hafði bara þyngst um rúmt kíló sem myndi undir venjulegum kringumstæðum fara með mig en ef við gefum okkur það ástand sem ég er í  þá er það svo sem í lagi. Auk þess þyngdist ég um ca 6 kg í síðustu skoðun og þar eru sko þó nokkur smjörlíkistykkin skal ég segja ykkur ;O) og ég þarf varla að taka það fram að mér þótti það alger hrillingur.                                                                                Drengurinn er núna bara venjulegur að stærð eða það er að segja 29 vikna en ekki 3 vikum á undan áætlun eins og áður og hlítur það að þýða að ég hafi slakað á í átinu.;O) Ég var allavega svo ánægð með þetta alls saman að ég bara varð að festa það á blað hérna.

Myndaalbúmmið okkar er ekki alveg komið á réttan kjöl vegna mikilla anna húsbóndans, því þessa dagana hefur hann ekki undan að horfa á fótboltann skal ég segja ykkur :O/ . Ég er nú ekki mikið fyrir að horfa á þetta sjálf en  á síðasta sunnudag lét ég samt tilleiðast og fór með Togga á fótboltaleik HK- ÍA. Þetta var alveg ágætt svo sem enda fórum við frítt inn vegna góðra sambanda skulum við segja ;O) og svo fékk ég popp og nammi sem getur gert gott úr heilmiklu. Þannig að það má segja að ég hafa afmeyjast á þessu sviði því þetta er eini fótboltaleikurinn sem ég hef horft á LIVE um mína ævi, pæliði bara!!!

En ég hef ekki meira að segja í bili.

Kærar kveðjur frá tilvonandi móður og fótboltasjúkum föður ;OÞ

07. júní 2008

Sæl öllsömul.

Okkur langar til að byrja á að þakka öllum sem skrifuðu í gestabókina fyrir ómakið, því það er alltaf gaman að fá jákvæð viðbrögð við því sem maður er að gera.


Núna erum við að reyna að fá einhverja mynd á albúmmið og setja líka viðbót í það en það eru þrívíddarsónarmyndir sem voru teknar þann 3.júní síðastliðinn. 
Það er annars alveg makalaust hvað maður getur mismælt sig því ég hef sagt svo oft rafeindasónar í staðin fyrir þrívíddarsónar, veit ekki alveg af hverju?? Maður gæti kannski ímyndað sér að vélmenni færu í svolleiðs ef þau gætu eignast börn!! hehe
Það var annars mjög gaman að þessu, maður getur séð alveg sköpulag og mynd á afkvæminu nema það er svona gult á litinn einhvern veginn sem ég vona að muni ekki verða raunin þegar krúttið kemur í heiminn...muhahaha...
Hann var annars frekar óþekkur, vildi lítið sem ekkert sýna andlitið sitt nema bara svona rétt smá prófilmynd sem hefði nú líka mátt vera betri og skýrari  en það er kannski bara ágætt að eiga smá eftir þegar hann kemur svo litli kúturinn. Við sáum mest útlimina sem hann var með aðallega í andlitinu á sér ...hendurnar héldu fyrir það og litlu fæturnir voru líka á svipuðu svæði svo var naflastrengurinn líka að þvælast þarna fyrir.
Konan sem stjórnaði þessu hátæknitæki lét mig reyna ýmislegt til að drengurinn hætti þessum feluleik en þar má nefna hlaup upp og niður stiga, klakavatnsdrykkja í einum teig, hopp og skopp og svo ýtti hún alveg án afláts í bumbuna sem var svoldið óþægilegt en hey maður er hörkutól ;O). Þetta hafði auðvitað einhver áhrif en samt  ekki nægileg og þá sagði konan að hann væri frekar rólegur sem mér þótti vænt um og vona bara að muni haldast.hehe
Annars var þetta bara gaman  og skrítið í senn en alveg allra peninganna virði sem voru nú þó nokkrir ;O).....

Annars er allt gott að frétta af tilvonandi móður svo sem, ég er samt farin að vera þreyttari en áður, mér finnst ekkert að því að fara að sofa á hverju kvöldi klukkan 10 sem er mjög ólíkt mér og er farin að þurfa minn svefn skulum við segja.
Ég þarf annars að fara í sjúkraþjálfun reglulega núna vegna óþæginda í baki og svo að fara helst daglega í sund sem gerir svo sem alveg hellings gagn ef því er bara sinnt.
Drengurinn sýnir mér líka enga miskunn og er farin að vera svoldið ofbeldishneigður að mínu mati, sparkar í rifbeinin og stundum liggur við í rassinn á mér svei mér þá bara.. ;O) Núna næstkomandi þriðjudag verður hann 29 vikna og er samkvæmt doktor.is 26 cm í sethæð og 1,3 kg allavega ca og hér umbil. :O)
Þetta gengur allavega bara allt alveg ágætlega og næst koma kannski nýjar myndir af bumbunni sem stækkar og stækkar mér og bakinu mínu til mikilla óþæginda...en hey "svoddan er livet svo meget falskhed"....maður verður nú að þjást svoldið ef maður ætlar að vera til :O)....

En nóg í bili.

Kveðjur frá verðandi móður.

30. maí 2008

Jæja sæl og blessuð.

Þótt að þetta sé aðeins önnur færslan á blogginu þá er ekki hægt að segja að það hafi engar breytingar átt sér stað. Núna bjóðum við nefnilega upp á gestabók og æsispennandi niðurtalningu. Einnig eru komnar inn nokkar myndir af Ídu í ýmsum stellingum.

Annars er það að frétta að bumban hefur tekið agalegan vaxtarkipp, eins og sjá má á myndunum. Krakkinn hefur tekið síðasta blogg til sín og leyfði mér að finna aðeins fyrir spörkunum, sem ég er mjög ánægður með og ég get kannski nýtt mér tækifærið og beðið hann um að hætta að sparka í þvagblöðruna á frúnni...

Hreiðurgerðin hefur aðeins staðið í stað síðustu misseri þvert á öll plön. Við eigum ennþá eftir að spartla og mála og eitthvað þannig.. en í staðinn lögðum við í eggjarán. Já! við skötuhjúin fórum nefnilega austur núna um helgina til tengdó. Þar fórum við Bjössi og stálum nokkrum ritueggjum frá ólánsömum ritum og ég og Ída nældum okkur í kríuegg. Kríurnar voru samt naskar við að fela eggin fyrir okkur því við fundum rétt svo 20 egg. Og á meðan talaði Ída nú ekki um mikið annað en hvað þetta hefði nú ekki verið svona erfitt á mjóafirði.. en þar er víst ekki þverfótandi fyrir kríueggjum á þessum tíma árs.

En nóg af okkur. Krakkinn er núna 28 vikna og u.þ.b 12 vikum frá áætluðum komudegi. Hann ætti að vera orðinn um 1150g og heilir 25cm í sethæð(eða svona eins og meðal skólareglustrika). En hjúkkan okkar sagði  að hann væri víst óvenju stór miðað við aldur.. eða um 2 vikum stærri. Ídu var þá bannað að borða fósturvaxtahvetjandi matvæli.. sem henni finnast reyndar afskaplega ómótstæðilega góð, en þar við situr.  Enginn ís eða annað nammi handa lillapung nema á laugardögum.

Og þá er ekki fleira að blogga um í dag... verið þið sæl.

ps. Setti inn nokkrar myndir úr ferðinni í myndagalleríið.
 

12. maí 2008

Sæl og blessuð.

Hér með opnum við formlega þennan vef tileinkuðum ófæddum syni okkar.

Núna eru liðnar um það bil 25 vikur frá örlagakveldinu mikla. Drengurinn ætti að vera um það bil 750g og 22cm.

Ídu líður svo upp og ofan, hún kvartar yfir bakinu en og það er víst vont en það venst. (virðist vera).
Einhver stakk uppá því að hún færi í nálastungu meðferð og ætlar hún að komast í það eftir næstu heimsókn uppá heilsugæslustöð.

Drengurinn sparkar alltaf fastar og fastar en um leið og ég ætla að finna spörkin þá hættir hann. Það fer að verða soldið pirrandi því eina áþreifanlega sönnunin sem ég hef er bumba á konunni, á meðan Ída hefur alskonar karate spörk, vélindabakflæði, bakverki, meltingartruflanir og fleira... erm.. já... að öðru..

Annars ætlum við að reyna að vera með fréttir og myndir af gangi mála fyrir vini og ættingja.
En þar sem þetta er fyrsta blogg síðan sem ég hef nokkurn tímann búið til og frumraun mín í að skrifa þá eigum við bara eftir að sjá hvernig þetta gengur.

thorgeir - out.